top of page

Ljótur leikur

Höfundur: Angela Marsons

Því meiri sem illskan er, þeim mun hættulegri verður leikurinn …

Þegar dæmdur nauðgari er stunginn til bana eru rannsóknarfulltrúinn Kim Stone og liðið hennar kölluð á vettvang til að leysa málið í snatri. Fleiri skuggalegir atburðir eiga sér stað og það verður æ ljósara að eitthvað enn óheillavænlegra liggur að baki. Eftir því sem rannsókninni vindur áfram og Kim er einnig að reyna að ljóstra upp leyndarmálum hrings barnaníðinga, verður hún smám saman skotmark brjálaðs einstaklings sem fæst við sjúklegar tilraunir.


Rannsóknarfulltrúinn þarf að taka á öllu sínu í baráttunni við hættulegan félagsblindingja sem virðist þekkja allar veikar hliðar hennar. Þegar fórnarlömbunum fjölgar verður Kim að grafa lengst niður í fortíð sína til að stoppa morðingjann. Í þetta sinn er baráttan persónuleg.

 

Fimm stjörnu krimmi frá Frá höfundi metsölubókarinnar Þögult óp

bottom of page