top of page
Vonlaust_kapa_ISL_FRONT.jpg

Elias Vahlund og Agnes Vahlund

 

Handbók fyrir ofurhetjur

Sjötti hluti – Vonlaust

Óttaslegið fólk getur verið hættulegra en það sem það hræðist. Rósahæð er í áfalli. Sjö börn í viðbót hafa horfið sporlaust og fólk er bæði hrætt og reitt. Af hverju gera lögreglan og Rauðan gríman ekki neitt? Getur bærinn ekki stólað á ofurhetjuna sína, nú þegar virkilega er þörf á? Lísa og félagar hennar eru þó að rannsaka málið í leyni og eru komin á slóð mannræningjanna. En það er eitthvað sem gengur ekki upp ...
Handbók fyrir ofurhetjur bókaserían hefur slegið í gegn á Íslandi og víðar. Hér er kominn sjötti hlutinn um Rauðu grímuna og félaga hennar.

bottom of page