top of page
FRONT_Veidi_von_KAPAN.jpg

Veiði, von og væntingar

Höfundur:

Sigurður Héðinn
 

Hér er komin hin fullkomna bók fyrir laxveiðifólkið! Í bókinni er farið vel yfir ólíka veiðitækni og farið nákvæmlega yfir það hvernig setja eigi í og landa laxi. Þá eru í bókinni meira en 50 ómissandi flugur og að sjálfsögðu fylgja veiðisögur, mátulega ýktar. Sigurður Héðinn er einn þekktasti veiðimaður landsins auk þess að vera heimsþekktur fluguhnýtari. Þetta er ómissandi bók fyrir alla sem hafa áhuga á laxveiði!

Sigurður Héðinn eða Siggi Haugur eins og flestir veiðimenn þekkja hann er að gefa út sína þriðju bók um stangveiði.

Það er nokkuð klárt mál að flestir laxveiðimenn hafa á einhverjum tímapunkti hnýtt undir einhverja af flugunum hans Sigga og þá er Haugurinn líklega ein af þeim vinsælustu í Íslenskum laxveiðiám. Þetta er þriðja bókin á jafn mörgum árum frá þessum heimsþekkta fluguhnýtara, gæd og laxveiðimanni. Bókin heitir Veiði, von og væntingar og er bæði gullfalleg og innihaldsrík.

Siggi fer yfir veiðitækni (andstreymisveiði, kasta undir horni, losað úr fiski, fiski landað svo eitthvað sé nefnt), hann sýnir meira en fimmtíu flugur sem hver heiðvirður laxveiðimaður og hver laxveiðikona þarf að kunna skil á og auðvitað fylgja dæmisögur, veiðisögur og ýkjusögur. Bókin er væntanleg í verslanir þegar líður á nóvember. Við óskum Sigga til lukku með bókina og það er ljóst að stangveiðimenn bíða í ofvæni eftir að fá þessa bók í harða pakkanum.

​Sól Hilmarsdóttir myndlýsir

bottom of page