top of page

Stóri bróðir

Skúli Sigurðsson

Stóri bróðir er saga um hefnd og réttlæti, um kærleika og missi, ofbeldi og gamlar syndir. 


 

Svartklædd vera gengur í skrokk á manni við Rauðavatn og hverfur svo eins og vofa út í nóttina. Enginn veit hver árásarmaðurinn er eða hvað vakir fyrir honum. 

 

Emil Þorsteinsson, blaðamaður, telur árásina tengjast öðrum árásum í Reykjavík og að svartklædda veran sitji skipulega um fórnarlömb sín. Rannsókn Emils leiðir í ljós að árásarmaðurinn telur sig ganga erinda þeirra sem eiga um sárt að binda; hann vilji útdeila réttlæti fyrir þeirra hönd.


 

Stóri bróðir er hörkuspennandi og blóði drifin glæpasaga sem tekur óvæntar vendingar þegar minnst varir.
 

Um höfundinn

 

Skúli Sigurðsson er lögfræðingur með reynslu af mannúðarstörfum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, flóttamannarétti og blaðamennsku.  

 

Með þessari fyrstu bók sinni skipar Skúli sér umsvifalaust á bekk með fremstu spennubókahöfundum landsins. Hér heldur á penna öruggur, markviss og ákaflega snjall höfundur – sem nær að halda lesandanum spenntum frá fyrstu blaðsíðu til þeirrar síðustu.

skuli-001-unnin.jpg
bottom of page