top of page
PAX_Nidst_front.png
Screen Shot 2018-10-19 at 10.04.25.png

TÍMINN TIFAR OG MYRKRIÐ SKELLUR Á.

Í Mariefred gerast undarlegir hlutir. Yfirnáttúrrulegar

verur vakna til lífs. Bræðurnir Viggó og Alríkur hafa valist

til að vernda leynilega bókasafnið sem er undir kirkjuhólnum.

Hinum gömlu gæslumönnum bókasafnsins finnst

bræðurnir heldur ungir til að vera stríðsmenn og vilja láta á

þá reyna. Brátt stefnir í voða og Alríkur og Viggó verða að

sýna af sér bæði hugrekki og kænsku til að lifa af. Auk þess

fer fram barátta á skólalóðinni, þar sem hinn kokhrausti

Símon og kumpánar hans halda að þeir eigi allt og alla.

Níðstöngin er fyrsta bókin í PAX-seríunni. Bók

númer tvö, Beislið, kemur út vorið 2019.

Screen Shot 2018-10-19 at 09.57.24.png
Screen Shot 2018-10-19 at 09.57.37.png
Screen Shot 2018-10-19 at 09.58.12.png

Ingela Korssell, Henrik Jonsson og Asa Larsson

Åsa Larsson er einn af vinsælustu spennusagnarithöfundum Norðurlandanna. Bækur hennar um Rebecku Martinsson hafa selst í milljónum eintaka um allan heim og unnið til fjölda verðlauna. Åsa vinnur í fullu starfi sem rithöfundur. PAX er fyrsta bókaröðin hennar fyrir unga lesendur.

Ingela Korsell er rithöfundur og menntuð grunnskólakennari. Í dag skiptir hún tíma sínum á milli þess að vinna við 

rannsóknir og kennslu barnabókmennta (læsi barna) við háskólann í Örebro og að skrifa barna- og unglingabækur.

Bæði Ingela og Åsa búa og starfa í Mariefred, þar sem þær deila einnig vinnuaðstöðu. Áður hafa þær skrifað saman efni í útvarpsþætti fyrir börn í Svíþjóð. Þeim finnst báðum norræna goðafræðin og sænsk þjóðtrúin spennandi viðfangsefni sem gaman er að vinna með í PAX bókunum. 

 

Henrik Jonsson er myndskreytir og teiknimyndagerðarmaður. Hann úrskrifaðist frá Kubert skólanum í Bandaríkjunum og hefur m.a. teiknað fyrir DC Comics, í blöð eins og Batman og Suicide Squad. Henrik býr og starfar í Gautaborg. Af öllum fyrirbærunumum í Pax-seríunni finnst honum skemmtilegast að teikna drýslana vegna þess að eru svo litlir og viðbjóðslegir, en samt sem áður svolítið sætir.  Henrik gæti hugsað sér að eiga drýsil sem gæludýr. Drýsilinn myndi halda honum félagsskap þegar hann teiknar fram á nætur og jafnvel sækja fyrir hann pennana.

Þýðandi er Sigurður Þór Salvarsson 

Screen Shot 2018-10-19 at 09.58.21.png
Screen Shot 2018-10-19 at 09.58.31.png
Screen Shot 2018-10-19 at 09.57.47.png
Screen Shot 2018-10-19 at 09.58.05.png
Screen Shot 2018-10-19 at 09.57.55.png
bottom of page