top of page

Morgan Larsson

Líkkistusmiðirnir

 

Líkkistusmiðirnir_.png

Líkkistusmiðirnir er hlý og gamansöm saga um manneskjur sem taka að sér verkefni sem vekur upp hugmyndir um dauðann og byrja að spyrja sig sjálfar hvað þær vilji eiginlega fá út úr lífinu. Líkkistusmiðirnir draga fram bros, skapa vangaveltur um lífið og verma lesandanum um hjartarætur.

Samúel Miller lyfti kampavínsglasinu. „Skál, kæru líkkistusmiðir. Velkomin til Lövenseyjar."

Fólkið leit í kringum sig. Það hafði ekki átt von á þessari gróskumiklu fegurð, hvað þá kampavíni.

 

„Það hljómar kannski afar þunglyndislegt að ætla að smíða sína eigin líkkistu," hélt námskeiðshaldarinn áfram. „Í raun og veru virkar það þó þveröfugt. Hamarshöggin blása manni í brjóst kjarki til að gera það sem mann langar til áður en það verður um seinan." Hann drakk freyðandi drykkinn í botn. „Njóta á meðan tækifæri gefst, það er þetta sem líkkistusmíði snýst um."

 

Sumum í hópnum finnst hugmyndir Samúels talsvert háfleygar. Að minnsta kosti í byrjun. Þegar kisturnar fara að taka á sig mynd verður þó æ erfiðara að halda aftur af tilfinningum sem vilja fá útrás. Leyndarmál, dulinn tilgangur og niðurbældar hvatir, allt brýst þetta upp á yfirborðið þar til ekkert getur lengur orðið eins og það var.

 

Um höfundinn

 

Morgan Larsson er fæddur 1970 í Trollhattan í Suður-Svíþjóð. Hann er rithöfundur og blaðamaður sem einnig hefur starfað mikið í útvarpi. Hann elskar súrkál, boltaíþróttir og Indland og hefur einu sinni lent í öðru sæti í sútunarkeppni. Líkkistusmiðirnir eru hans fjórða bók en sú fyrsta sem kemur út hér á landi.

bottom of page