top of page

Af flugum, löxum og mönnum

Af flugum, löxum og mönnum

eftir Sigurð Héðinn.

Sigurður Héðinn er landskunnur veiðimaður og leiðsögumaður veiðimanna. Sigurður er einnig þekktur um allan heim fyrir þær flugur sem hann hefur hannað og hnýtt. Nú hefur Sigurður skrifað og sett saman gullfallega, áhugaverða og einstaka veiðibók. Bókin heitir Af flugum, löxum og mönnum og í henni fjallar Sigurður um nánast allt sem viðkemur laxveiðinni; hinar ólíku veiðiaðferðir sem hægt er að beita, hvernig skuli lesa vatnið, sjónsvið laxfiska, veiðibúnaðinn og ótalmargt fleira. Þá eru í bókinni uppskriftir að fjölda flugna - og að sjálfsögðu fá ótal veiðisögur að fylgja með. Sigurður er einn reynslumesti laxveiðimaður landsins og hér fá lesendur að kíkja í reynslubankann.
 

Bókina skreyta stórglæsilegar ljósmyndir af flugum sem Kristinn Magnússon tók og einstaklega fallegar og skýrar teikningar sem Sól Hilmarsdóttir teiknar. Arndís Lilja Guðmundsdóttir færði texta og myndir í gullfallegan búning. 


Bókin er 144 bls, með myndum af meira en 50 flugum og 17 skýringarteikningum. Hún er 17x24 sm í brotinu, prentuð á 120 gr Munken Pure Rough pappír og er að sjálfsögðu harðspjalda bók.

 

Fyrir veiðiáhugamanninn og -konuna er þessi bók sannkallaður gullmoli.

FRONT_Af_flugum_KAPAN.jpg
bottom of page